Gæsavængir !!!

Gaesamalefni

Svör samtals: 23
Virk(ur) síðan: 23 August 2012

Eins og undanfarin ár þá munum við safna vængjum af gæsum og öndum til aldursgreininga á veiðinni. Út frá gæsa- og andavængjum úr veiðinni má lesa hlutfall unga frá sumrinu og þannig fá hugmynd um hvernig varp og ungaframleiðsla veiðistofnanna hefur tekist. Við leitum því enn á ný til veiðimanna eftir því að fá að skoða vængi af öllum tegundum gæsa og anda. Annað hvort getum við mætt á staðinn þar sem fuglarnir eru, ef því verður við komið, og aldursgreint aflann eða þið getið sent til okkar annan vænginn af þeim fuglum sem þið skjótið. Vinsamlegast hafið samband við Arnór Þ. Sigfússon í síma 4228000 og 8434924 eða ef þið eruð á Austurlandi þá hafið samband við Halldór W. Stefánsson í síma 4712553 og 8465856. Þið getið einnig sent okkur tölvupóst á ats@verkis.is og halldor@na.is

Ef vængir eru geymdir og sendir þá má ekki geyma þá í plasti lengi því þá úldna þeir fljótt. Best er að leyfa þeim að þorna og setja svo í pappakassa. Ef vængir eru höggnir af þá sendið alltaf vængi sömu megin af öllum fuglunum, t.d. hægri væng. Látið fylgja með nafn, síma, heimilisfang og/eða netfang og hvenær gæsirnar og endurnar voru veiddar og gjarnan á hvaða veiðisvæði skv. veiðidagbók veiðistjórnunarsviðs. Við sendum ykkur svo til baka aldurshlutfall í aflanum ykkar.

Með ósk um gott samstarf.

Bestu kveðjur

Arnór þ. Sigfússon

Tags:
Skrifað þann 23 August 2012 kl 8:58
Sýnir 1 til 6 (Af 6)
5 Svör

Gaesamalefni

Svör samtals: 23
Virk(ur) síðan: 23 August 2012

Re: Gæsavængir !!!

Veiðimenn
Munið eftir vængjunum ef þið haldið á veiðar um helgina.

Kv.

Arnór Sigfússon

Skrifað þann 24 August 2012 kl 8:40

Gaesamalefni

Svör samtals: 23
Virk(ur) síðan: 23 August 2012

Re: Gæsavængir !!!

Minni veiðimenn á að við tökum enn við gæsavængjum.

Skrifað þann 20 September 2012 kl 0:04

Ultralight

Svör samtals: 5
Virk(ur) síðan: 23 July 2012

Re: Gæsavængir !!!

Sæll Arnór - Hvernig hafa undirtektirnar verið, vona að menn séu duglegir að senda á þig vængi. Hefur þú tök á því að gefa okkur gæsaveiðimönnum upp tölfræði til þessa. Hvernig er ungahlutfallið, er það mismunandi milli gæsategunda og landshluta o.s.frv.

Hvet alla gæsaveiðimenn til að taka þátt í þessu verkefni með Arnóri og Halldóri. Kíkið endilega á afraksturinn https://vimeo.com/34026713 frá því í fyrra, en Arnór hefur verið duglegur að kynna niðurstöður sínar fyrir veiðimönnum.

Kveðja,
Arne Sólmundsson, arnesolmundsson@skotvis.is

Skrifað þann 20 September 2012 kl 20:11

Gaesamalefni

Svör samtals: 23
Virk(ur) síðan: 23 August 2012

Re: Gæsavængir !!!

Sæll Arne
Undirtektir hafa verið þokkalegar. Lítið komið af grágæsavængjum enn þó en er greinilega að aukast. Um niðurstöður er það að segja að þetta stefnir í besta ár sem ég hef séð hjá heiðagæsinni. Varpið virðist hafa tekist mjög vel og ungarnir stórir. Það er enn of snemmt að segja til um grágæsina en virðist þó stefna í gott ár hjá henni líka.
Ég stefni á að halda aftur svona kvöld eins og var í fyrra og þið sýnið í vídeóinu. Þangað er boðið þeim sem aðstoða mig með því að senda mér vængi og þeim sem aðstoða við talningar og fleira.

Ef menn eru að veiða nú um helgina þá endilega látið mig vita og ég sæki vængi hér á höfuðborgarsvæðinu eða þið komiði þeim til mín. Síminn er 8434924

Bestu kveðjur

Arnór

Skrifað þann 23 September 2012 kl 19:00

Gaesamalefni

Svör samtals: 23
Virk(ur) síðan: 23 August 2012

Re: Gæsavængir !!!

Hverngi gekk gæsaveiðin um helgina. Endilega sendið okkur vængi eða hafið samband.

Skrifað þann 30 September 2012 kl 21:14