Horfið eftir grágæsum um helgina!

Gaesamalefni

Svör samtals: 23
Virk(ur) síðan: 23 August 2012

Nú um helgina, 9. og 10. nóvember, verða grágæsir taldar á Bretlandi. Eins og áður er mikilvægt að vita hvort einhver verulegur fjöldi af grágæsum sé enn hér á landi svo unnt sé að taka það með í reikninginn. Því vil ég óska eftir því að veiðimenn og aðrir gæsaáhugamenn sem sjá til grágæsa um helgina eða verða varir við grágæsir á næstu dögum láti mig vita. Gott væri að vita hvar þið sáuð grágæsir, hvenær og hve margar þið teljið að þær hafi verið. Einnig er gott að heyra ef grágæsir eru horfnar af ykkar svæði. Ég mun svo taka saman þær upplýsingar sem ég fæ og senda talningaraðilum á Bretlandi sem eru Wildfowl & Wetlands Trust.

Ef eitthvað sést til heiðagæsa eða blesgæsa er gott að fá fréttir af því einnig.

Upplýsingar má senda á gaesafrettir@gmail.com eða ats@verkis.is, eða hafa samband í síma 8434924


Með fyrirfram þökk

Arnór Þ. Sigfússon


ps. Ef einhver ykkar eru að veiða gæsir og/eða endur þá væri vel þegið að frá frá ykkur vængi til aldursgreininga.

Tags:
Skrifað þann 7 November 2013 kl 9:00
Sýnir 1 til 1 (Af 1)
0 Svör