Nýliðakennsla á svæði Skotreynar í kvöld (miðvikudag) kl 18:30

Skotreyn

Svör samtals: 47
Virk(ur) síðan: 23 July 2012

Miðvikudaginn 17. apríl verður boðið upp á nýliðakennslu á svæði Skotreynar í Álfsnesi kl 18:30.

Tveir leiðbeinendur verða á svæðinu og munu fara yfir helstu atriði til að bæta hittni og umgengni á skotpöllum. Farið verður létt í hvernig hægt er að bæta árangur með haglabyssu við veiðar og í leirdúfuskotfimi.

Tvær Benelli Vinci byssur verða á staðnum fyrir byssulausa en ætlast er til að þáttakendur komi með sín eigin skot (24gr.-28gr.)

Hér má sjá staðsetningu : http://skotreyn.is/heimasiða/skotæfingasvæði

Kveðja stjórn Skotreynar

Tags:
Skrifað þann 17 April 2013 kl 9:53
Sýnir 1 til 1 (Af 1)
0 Svör