Rjúpnakvöld með Landsbjörg á vegum Skotreynar

frissi

Svör samtals: 10
Virk(ur) síðan: 23 July 2012

Miðvikudag 8. október kl.19:30 er félagsmönnum Skotreyn boðið uppá fyrirlestur frá Landsbjörg í félagsheimili Skotreynar í Álfsnesi. Farið verður yfir öryggi á ferðum og á veiðislóð. Helstu hættur og varúðarráðstafanir til að fyrirbyggja slys og önnur óhöpp. Fyrirlesturinn tekur um klukkustund.
Þar á eftir verður nýliðakynning á rjúpnaveiði þar sem farið er í helstu grunnþætti sem snúa að veiðum svo sem útbúnað og fleira tengt veiðum.

Með kveðju,
Vopnaþing

Tags:
Skrifað þann 8 October 2014 kl 11:01
Sýnir 1 til 1 (Af 1)
0 Svör